14. apríl 2011
Hægt er að kaupa miða með því að greiða inn á reikning 0515-14-613742. Kennitala: 690269-1399.
Kaupendur setji inn kennitölu í reit greiðanda.
Miðana verður síðan hægt að nálgast á skrifstofu Verzlunarskólans eða við innganginn þann 6. maí.
Einnig er hægt að kaupa miða á skrifstofu skólans frá 28. apríl.
Miðaverð er kr. 7.500.
Miðasölu lýkur miðvikudaginn 4. maí.
Nánari upplýsingar má fá hjá
Rögnu Ögmundsdóttur á skrifstofu skólans í síma
590 0638
Senda má tölvupóst til okkar eða hafa samband í síma:
ragnao@verslo.is, GSM 822 1823
kristin@verslo.is, GSM 899 4812
9. mars 2011
Munið fundinn
mánudaginn 14. mars í Verzló
Veislustjórn og undirbúningsnefnd mæti
kl. 17:00
Fulltrúar afmælisárganganna mæti
kl. 17:30
Undirbúningsnefndin
24. febrúar 2011
Hér er tengill í fulltrúalista afmælisárganganna
15. febrúar 2011
Hófið verður haldið í Gullhömrum
Húsið opnar kl. 19:00 með fordrykk.
Borðhald hefst kl. 20:00.
Hátíðarmatseðill Gullhamra
I Forréttur
Humarsúpa með ristuðum humarhölum og nýbökuðu brauði
II Aðalréttur
Sinnepsgljáður lambahryggsvöðvi með sætum kartöflum, rjómasoðnum sveppum og rauðvínssósu
III Ábætisréttur
Logandi crême Brulêe með kókosís og ávöxtum
Kaffi
Miðasala: Nánari upplýsingar síðar.
Miðaverð er kr. 7500.
Nánari upplýsingar:
Kristín I. Jónsdóttir
netfang: kristin@verslo.is
GSM: 899 4812
og
Ragna Ögmundsdóttir
netfang: ragnao@verslo.is
GSM: 822 1823
14. febrúar 2011
Miðvikudaginn 9. febrúar hélt undirbúningsnefndin fund í Verzlunarskólanum með fulltrúum júbílanta. Fulltrúar nærri allra afmælisárganganna mættu á fundinn og sýndu þeir mikinn áhuga á að vanda sem best til hátíðarinnar þann 6. maí og hvetja skólafélaga sína ásamt mökum til þátttöku.
Veislustjórn verður í höndum 30 ára stúdenta og munu þeir funda reglulega með undirbúningsnefndinni.
Við munum láta heyra frá okkur hér á Stúdentavefnum.
Bestu kveðjur,
Fyrir hönd undirbúningsnefndarinnar
Kristín
Nánari upplýsingar gefa:
Kristín I. Jónsdóttir
netfang: kristin@verslo.is
GSM: 899 4812
Ragna Ögmundsdóttir
netfang: ragnao@verslo.is
28. janúar 2011
Verzlunarskóli Íslands vill gjarnan stuðla að því að gamlir nemendur skólans hittist reglulega á 5 ára fresti og rifji upp gamla tíma úr Verzló. Nú er komið að því að boða til árlegs stúdentafagnaðar.
Að þessu sinni verður hátíðin haldin föstudaginn 6. maí nk. í Gullhömrum í Grafarholti.
Hátíðin hefst kl. 19.00 með fordrykk og borðhald hefst kl. 20. Skemmtiatriði og söngur verður á milli rétta. Að borðhaldi loknu verður stiginn dans fram á nótt. Miðaverð er kr. 7.500 fyrir þríréttaða veislumáltíð og hljómsveit. Miðar verða seldir á skrifstofu skólans en nánari upplýsingar um miðasöluna verða á stúdentavefnum.
Undirbúningsnefnd hátíðarinnar skipa:
Ásdís Rósa Baldursdóttir, asdis@verslo.is
Guðlaug Nielsen, gudlaugn@verslo.is
Kristín I. Jónsdóttir, kristin@verslo.is
Magnea Ragna Ögmundsdóttir, ragnao@verslo.is
Klara Hjálmtýsdóttir
Nefndin mun hafa samband við fulltrúa úr hverjum árgangi sem verður tengiliður síns árgangs við nefndina.
Stúdentavefur VÍ er á heimasíðu skólans www.verslo.is og er hann vettvangur fyrir upplýsingar og samskipti. Markmiðið er að Stúdentavefurinn verði líflegur og góð heimild fyrir okkur og skólann okkar. Til þess að svo megi verða hvetjum við ykkur til að setja inn myndir og upplýsingar. Skólinn er fús til að liðsinna við það.
Með góðri kveðju,
Ingi Ólafsson,
skólastjóri