 |
 |
 |
|
 |
 |
|
| Maria Kristjánsdóttir |
|
| 26. apríl, 2007 | 17:06 |
| HTML |
| Unnum í síðuútliti í dag með HTML. Ég kunni eitthvað á þetta sökum þess að ég hafði búið mér til Myspace fyrir skömmu síðan.. |
 |
 |
 |
| 24. apríl, 2007 | 12:42 |
| Siðferði og höfundaréttur |
Skrifaði mjög lítið um þetta í verkefninu, einfaldlega af því að þetta er svo mikið common sense, finnst óþarfi að vera að gera þetta eitthvað nákvæmar. Varð fyrir vonbrigðum með þennan hluta, hélt hann yrði skemmtilegri.
- Maria |
 |
 |
 |
| 20. apríl, 2007 | 13:35 |
| Markaðsfræðiverkefni og 9,9 |
Ég er ekki að koma mér af stað í tölvuverkefninu um siðferði á netinu og höfundarréttalög, þannig að ég ákvað að skella inn dúndurbæoggi í staðin.
Við kláruðum loksins markaðsfræðiverkefnið á miðvikudagin þegar haldnar voru kynningar á verkefnunum eftir hádegi til um 4 ef ég man rétt. Það gekk mjög vel, og fannst mér okkar kynning afburða flottust ef ég segi sjálf frá, enda mjög flott uppsett í sérstöku forriti í Apple tölvu. Það var litríkt og skemmtilegt, sem er einmitt sú ímynd sem við viljum að Frissi fríski hafi í verkefninu. Auglýsingarnar voru líka æðislegar.
Fékk svo 9,9 fyrir stóra Word-verkefnið sem við unnum, og Sólveig sagði að það gæti varla verið betra. :D |
 |
 |
 |
| 17. apríl, 2007 | 12:52 |
| Fyrirlestrar |
| Hlustuðum á fyrirlestra um höfundarrétt og siðferði á netinu í dag. Fengum verkefni aftur. |
 |
 |
 |
| 13. apríl, 2007 | 13:30 |
| Googlemyndband, innviðir tölvunnar, saga og þróun netsins og gamlar 3. bekkjarsíður |
| Mikið gert í þessum 2 tímum, horft á myndskeið úr 60. mínútum um Google, unnið verkefni um innviði tölvunnar og þróun netsins, og gamlar síður bekkjarmeðlima síðan í 3. bekkjartölvutímum skoðaðar. |
 |
 |
 |
| 13. apríl, 2007 | 13:30 |
| GroveMusic og Catch-up |
| Vann verkefni um GroveMusic í dag, og er núna að fara að vinna verkefni sem ég ætti að vera búin að skila um Innviði tölvunnar og sögu og þróun netsins. |
 |
 |
 |
| 13. apríl, 2007 | 13:30 |
| Google myndband |
| Skrifaði um Googlemyndband sem við horfðum á fyrir páska. Mikil helgarfílingur í mér í dag. |
 |
 |
 |
| 27. mars, 2007 | 12:50 |
| KOX.. |
| Ég gerði ekki neitt í tímanum sökum þess að video-ið sem átti að sýna okkur virkaði ekki. Í staðinn var Sólveig með fyrirlestur. Það kemst ekkert að hjá mér nema kosningarnar í augnablikinu, er með ræðu á eftir.. |
 |
 |
 |
| 22. mars, 2007 | 17:10 |
| Google |
| Vorum að vinna Google verkefni í tímanum, þökk sé prentkvótaleysi þurfti ég að senda það til kennarans og get ekkert prentað út..sem er slæmt. Fer beint á skrifstofuna að kaupa meira eftir tímann.. |
 |
 |
 |
| 20. mars, 2007 | 12:46 |
| Gagnasöfn |
Ekkert bólar á gleraugunum mínum enþá...
Kláraði gagnasafnaverkefnið en get ekki prentað það út útaf þessum æðislega prentkvóta sem er búinn eins og ekkert sé. Mjög óhentugt. Nenni ekki að skrifa reiðilestur um þetta núna.
-Maria |
 |
 |
 |
| 15. mars, 2007 | 17:04 |
| Gaganasöfn |
Annar busy busy tími í upplýsingafræði, nánar tiltekið gagnasöfnum. Það sem stendur frekar uppúr er að ég er búin að týna bæði nýkeypta lesheftinu mínu í tölvum, og það sem verra er, dýru gleraugunum mínum..Það er slæmt mál að týna þeim, verð að tala við húsvörðin á eftir og athuga með þetta. Þurfti einmitt ekki á þessu að halda..
Við skoðuðum Gegni vel, og er það mjög gagnlegt.
Miklu betri vinnufriður í tímanum.. |
 |
 |
 |
| 13. mars, 2007 | 12:48 |
| Track Changes |
Þessi fítus er snilld, meiraðsegja í mínu hundgamla og lélega Word 2000(!) er þetta mjög gagnlegt, þó ekki eins flott og hérna. Verð að fara að uppfæra yfir í 2007 like yesterday, ef það verður ekki stökk úr steinöld í tækniöld þá veit ég ekki hvað það er.
Hef stundum notað TC til að hjálpa afa með að leiðrétta bréf fyrir hann, þannig að ég kann þetta ágætlega. Þurfti þó að læra á það sjálf (easy as pie) Fólk hefur verið að kvarta yfir að við höfum ekki lært þetta strax í 3. bekk, sem á mjög rétt á sér..
-Maria |
 |
 |
 |
| 9. mars, 2007 | 13:35 |
| Outlook |
| Tókum meira Outlook í dag. Tíminn einkendist frekar af milljón könnunar- og myndasendingum milli bekkjarmeðlima. Það voru mistök að kenna okkur á þessar kannanir í Outlook. Mikil ókyrrð og eirðarleysi fylgdi þessu. |
 |
 |
 |
| 8. mars, 2007 | 17:09 |
| Laga WORD verkefnið |
| Ég gerði ekki mikið í tímanum, er komin með upp í kok af markaðsfræðiverkefnavinnu í skólanum, þannig að ég tók mér pásu frá því. |
 |
 |
 |
| 6. mars, 2007 | 12:53 |
| Outlook |
| Kunni flest af þessu sem við vorum að gera, eða hef lítil not fyrir það. En samt sem áður, annar góður tölvutími hjá 5-A.. |
 |
 |
 |
| 1. mars, 2007 | 16:57 |
| Word verkefni BÚIÐ! |
Thank you very much, þetta blessaða Word verkefni er BÚIÐ!
Við höfum bara verið að vinna í því seinustu tíma (sem ég hef gleymt að blogga um, ætla alltaf að gera það þegar ég kem heim, en gleymi því), og svo verður markaðsfræðifyrirlestur á morgun í tölvutímanum, sem verður öruglega mjög áhugaverður.
Svo er önnur ferð til AK eftir það, ég er enþá bitur yfir að þurfa að fara aftur. Sérstaklega þar sem Pollý og Alla fara ekki (a.k.a. my sidekicks), þannig að ég verð on my own þarna..no good..
En þá er bara að öskra fyrir okkur allar I guess..
Þetta hlýtur að vera nóg.. |
 |
 |
 |
| 22. febrúar, 2007 | 17:06 |
| 22.2 - Skemmtileg dagsetning.. |
Man ekki baun hvað við gerðum í tímanum á þriðjudaginn, enda var ég nokkuð annars hugar þá. En anyway, þetta Wordverkefni flýgur áfram alveg hreint.
Hef ekki mikið meira að segja..
-Maria |
 |
 |
 |
| 16. febrúar, 2007 | 13:40 |
| Fös. 16.2 |
Frakkarnir loksins farnir. Held að engin sé fegnari en mamma, það runnu á hana tvær grímur þegar Frakkarnir mínir hófu að færa sig uppá skaftið og sýndu smá aðra hlið á sér. Þær eru í raun mjög ólíkar mér, bara þessi hálftími sem fer í það að gera sig til á morgnana er ekki beint það sem ég geri.
En núna fæ ég íbúðina mína aftur, sem er mjög gott. Bróðir minn fær þar afdrep þegar hann kemur heim núna fyrir jarðarförina hennar ömmu. Sem betur fer missi ég ekki úr neinn tölvutíma út af því, maður má varla við því að missa einn tíma úr.
Læt þetta duga í bili, þarf að fara að fá mér að borða..
-Maria |
 |
 |
 |
| 13. febrúar, 2007 | 12:58 |
| 13.2 |
| Fengum í hendurnar nokkuð stórt Word-Exel verkefni. Bjóst ekki við því. Þetta er mjög erfitt verkefni... |
 |
 |
 |
| 8. febrúar, 2007 | 17:02 |
| Seinustu tímar2 |
Ég var veik í tímanum í seinustu viku, mjög slæmt mál..
Svo hef ég í tímunum í vikunni unnid í 4 Word-Exel verkefnum sem ég var að skila áðan. Líður mjög vel með það, get verið róleg í næsta tíma vonandi. |
 |
 |
 |
|
|
 |
 |